Leiðrétting - Byggðastofnun Árshlutareikningur 6 mán. 2008 - Frétt birt 2008.08.22:19:30:47


Leiðrétting: Tilkynning nú sett í fulla dreifingu á evrópska efnahagssvæðinu.


Árshlutauppgjör Byggðastofnunar 30. júní 2008

Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á        
landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir
lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í  
atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu og vinnur 
að byggðaáætlun í samvinnu við Iðnaðarráðherra.                                 

Byggðastofnun er með skrifstofu sína á Sauðárkróki.  Í lok tímabilsins störfuðu 
20 starfsmenn hjá stofnuninni.                                                  

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir janúar til júní 2008 var staðfestur af 
stjórn stofnunarinnar 22. ágúst 2008.                                           

Hagnaður tímabilsins nam 8.769 þús. kr.                                         

Hreinar vaxtatekjur námu 207.440 þús. kr. miðað við hreinar vaxtatekjur upp á   
86.136 þús. kr. á sama tímabili 2007.  Hreinar rekstrartekjur námu 738.514 þús. 
kr. og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og       
niðurfærsla hlutafjár nam 729.745 þús. kr.  Framlög í afskriftarreikning útlána 
og niðurfært hlutafé voru 517.178 þús. kr.  Hagnaður tímabilsins nam því 8.769  
þús. kr. miðað við 4.018 þús. kr. hagnað á sama tíma 2007.                      

Eigið fé Byggðastofnunar nam 2.081.289 þús. kr. eða 13.77% af niðurstöðu        
efnahagsreiknings.  Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um          
fjármálafyrirtæki er 10,28%.  Samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um             
fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri    
fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni.                                        

Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 2,65% af eigin fé.            

Eignir Byggðastofnunar í lok júní 2008 námu 15.114.045 þús. kr., þar af námu    
útlán 13.495.341 þús. kr. og hafa hækkað um 3.998.402 þús. kr. frá lok árs 2007.

Skuldir Byggðastofnunar námu 13.032.755 þús. kr. og hafa hækkað um 2.167.813    
þús. kr. frá lok árs 2007.                                                      

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings voru í lok tímabilsins 366.041 þús. kr.

Attachments

byggastofnun arshlutauppgjor_2008.06.30.pdf byggastofnun frettatilkynning 06 2008.pdf