Framsetning árshlutareiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. • Tap varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 1.001 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi og er tapið fært til lækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs. • Eigið fé sjóðsins nam í lok júní 1.320 m.kr. skv. efnahagsreikningi. • Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2008 og breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga. Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ verðbréfasjóðs nam þann 30. júní 2008 3.532 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki er 59,7% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík. Nánari upplýsingar um árshlutareikning ICEQ verðbréfasjóðs veitir Sigþór Jónsson sjóðstjóri í síma 444 6000.
- Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2008
| Source: Stefnir hf.