- Afkoma fagfjárfestasjóðsins KB 1M á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2008


Framsetning árshlutareiknings fagfjárfestasjóðsins KB 1M er í samræmi við
reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu. 

Enginn hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt
rekstrarreikningi, en KB 1M hefur fengið víxla sína tekna til viðskipta í OMX
Nordic Exchange Iceland hf. 

•  Eigið fé sjóðsins nam í lok tímabilsins 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30. júní 2008
   og breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga. 

   Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili KB 1M, þann
   30. júní 2008 nam 3.532 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall
   sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 59,7% en samkvæmt
   lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka
   hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans
   og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá
Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning KB 1M veitir Trausti Jónsson sjóðsstjóri
í síma 444 6000.

Attachments

kb 1m-arshlutareikningur 30.6.2008.pdf