Endurfjármögnun XL Leisure Group ekki tryggð


- Sterkir fjárfestar koma að Eimskipafélaginu og styrkja stöðu þess -

Eins og áður hefur komið fram gaf HF Eimskipafélag Íslands út ábyrgð í tengslum
við sölu félagsins á XL Leisure Group sem enn er í gildi.  Samkvæmt upplýsingum
frá XL er unnið að endurfjármögnun lánsins.  Án þess að taka afstöðu til þess
hvenær þeirri vinnu muni ljúka, þá telur stjórn Eimskips ljóst af aðstæðum á
evrópskum flugmarkaði og rekstrarumhverfi flugfélaga almennt að líkur á þvi að
ábyrgðin falli á Eimskip hafi aukist.  Í ljósi þessa telur stjórn félagsins
skynsamlegt að tryggja stöðu þess, komi til þessa að ábyrgðin falli. 

Sterkir fjárfestar koma að Eimskipafélaginu og styrkja stöðu þess 

Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa ákveðið að styrkja
stöðu Eimskips, komi til þess að umrædd ábyrgð falli á félagið.  Falli ábyrgðin
á félagið, mun hópur fjárfesta undir þeirra forystu kaupa kröfuna og fresta
gjalddaga hennar.  Jafnframt er fyrirhugað að hún muni víkja fyrir kröfum
annarra lánardrottna á hendur Eimskip.  Með þessum aðgerðum eru takmörkuð þau
áhrif sem ábyrgðir vegna lána og annarra skuldbindinga vegna XL samstæðunnar
kunna að hafa á starfsemi Eimskips.  Fjárhæð kröfu vegna sölu XL og
flugrekstrarleyfisábyrgða, sem ofangreindir fjárfestar hafa lýst sig reiðubúna
að kaupa, er um 207 milljónir evra. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips: 
„Endurfjármögnun XL hefur verið stór þáttur í að losa Eimskip undan umræddum
ábyrgðum. Við vonumst enn til þess að það ferli klárist en viljum jafnframt
benda á að það ferli kann að reynast erfiðara en áður var talið. Komi til þess
að ábyrgðin falli á Eimskip hafa öflugir fjárfestar lýst sig reiðubúna til að
styðja við félagið sem ég tel mjög jákvætt. Markmið okkar er að
eiginfjárhlutfall félagsins sé yfir 25%. Í því samhengi er unnið að ýmsum
aðgerðum í rekstri félagsins. Tilgangur þessara aðgerða er að lækka skuldir
Eimskip umtalsvert og þar með styrkja fjárhag félagsins og eiginfjárhlutfall.“ 

Frekari upplýsingar veitir:
Gylfi Sigfússon 
Forstjóri 
Sími: 525 7202 
Póstfang: gyl@eimskip.is