XL Leisure Group plc. ("XL") hefur óskað eftir greiðslustöðvun eftir að reynt hafði verið til þrautar um alllangt skeið að koma við fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins. Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur") hefur átt gott starfstarf við XL um árabil og þykir miður að ekki skyldi takast að leysa þann vanda sem fyrirtækið stóð frammi fyrir. Alþekkt er að skilyrði til flugrekstrar hafa að mörgu leyti verið erfið að undanförnu og hefur Straumur unnið náið með stjórnendum XL að því að finna lausn á vanda fyrirtækisins. Jafnframt hefur bankinn lagt fyrirtækinu til fjármagn að undanförnu í því skyni að mæta lausafjárþörf þess. Áhætta Straums af kröfum á hendur XL nemur um 45 milljónum evra. Á þessu stigi er ekki ljóst að hvaða marki þetta fé verður endurheimt. Þótt fjárhæðin sem um ræðir sé ekki léttvæg er hún lág með hliðsjón af eigin fé Straums, sem var 1,5 milljarðar evra í lok annars ársfjórðungs. Samkomulag hefur náðst um að Straumur eignist starfsemi XL í Þýskalandi og Frakklandi, enda telur bankinn að þar sé um að ræða rekstur sem staðið geti undir sér. Starfsemi þessara fyrirtækja verður haldið áfram innan sjálfstæðra eininga. Ætlan Straums er að styðja við áframhaldandi rekstur þeirra og verður eignaraðild bankans að þeim tekin til endurskoðunar eftir því sem rétt og tímabært þykir. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi sími: 858 6778 netfang: olafur.gudnason@straumur.net
Varðandi XL Leisure Group
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.