Nýsi hf. hefur í dag, 19. september 2008, borist tilboð frá Landsbanka Íslands hf. og Kaupþingi banka hf. í allar eignir félagsins. Ef tilboðunum verður tekið munu þau hafa veruleg áhrif á efnahagsreikning félagsins. Félagið mun meta tilboðin og kynna þau síðan fyrir kröfuhöfum þar með talið kröfuhöfum þeirra verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í Kauphöllinni. Félagið mun því seinka birtingu á árshlutareikningi á meðan viðræður um tilboðin fara fram. Nánari upplýsingar veitir: Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Nýsis hf., í síma 897 4525
- Birtingu uppgjörs frestað
| Source: Nýsir hf.