- Stjórn Byrs sparisjóðs hefur í dag hætt sameiningarviðræðum við Glitni banka hf.


Stjórn Byrs sparisjóðs ákvað í morgun að hætta sameiningarviðræðum við Glitni
banka hf. en viðræðurnar sem hófust laugardaginn 20. september síðastliðinn 
voru ennþá á frumstigi. 

Varðandi  ástæður þess að viðræðum var hætt vísast til fréttatilkynningar
Glitnis banka hf. fyrr í dag. 

Staða Byrs sparisjóðs er sem fyrr sterk. Áhersla verður lögð á að viðhalda
núverandi styrk sparisjóðsins. 

Nánari upplýsingar gefa Jón Þorsteinn Jónsson stjórnarformaður Byrs í síma
824-0401 og Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri í síma 863-4255. 

Stjórn Byrs sparisjóðs