Íslenska ríkið kaupir 75% í Glitni



Fréttatilkynning:
Reykjavík 29. september, 2008
*          Íslenska ríkið greiðir 600 milljónir Evra fyrir 75% hlut í
  Glitni banka hf
*          Um er að ræða nýtt hlutafé
*          Viðskiptavinir, lánadrottnar og starfsmenn munu ekki finna
  fyrir breytingu
*          Eigin- og lausafjárstaða bankans styrkt verulega
*          Lárus Welding beðinn um að halda áfram störfum sínum fyrir
  bankann og hefur hann fallist á það
*          Forsendur fjármögnunar Glitnis breyttust á örfáum dögum
*          Stjórn og stærstu hluthafar hafa samþykkt viðskiptin

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að ríkissjóður leggi bankanum  til
nýtt hlutafé og  eignist með því  75% hlut í  Glitni Banka hf.  Fyrir
hlutinn greiðir íslenska ríkið 600 milljónir Evra eða um 84 milljarða
íslenskra króna.  Um  er að  ræða  nýtt hlutafé.  Stjórn  og  stærstu
hluthafar Glitnis hafa fallist á viðskiptin með fyrirvara um samþykki
hluthafafundar.
Fjármögnun Glitnis  hefur gengið  vel á  þessu ári  þrátt fyrir  afar
erfiðar markaðsaðstæður. Engu að síður hafa viðburðir síðustu tveggja
vikna á bandarískum og evrópskum fjármálamörkuðum haft í för með  sér
ófyrirsjáanlegar  afleiðingar  sem  gerbreyttu  forsendum   skammtíma
fjármögnunar Glitnis. Í því ljósi ákvað stjórn Glitnis að óska  eftir
viðræðum við Seðlabanka Íslands til þess að ræða mögulegar lausnir  á
þeim vanda sem  bankinn stóð  frammi fyrir. Þær  viðræður leiddu  til
framangreindrar niðurstöðu.
Ríkið hefur farið þess á leit  við Lárus Welding, forstjóra, að  hann
haldi áfram  störfum sínum  fyrir bankann.  Hann hefur  fallist á  þá
beiðni.
Tillagan  var  sett  fram  seint   í  gærkvöldi  og  var  boðað   til
stjórnarfundar í Glitni banka í morgun.  Á þeim fundi var ákveðið  að
ganga að henni. Þar með er bankinn kominn með afar traustan  hluthafa
og bakhjarl.
Grunnrekstur Glitnis er traustur og bankinn og hefur á þessu ári lagt
ríka áherslu á að  auka tekjur af  kjarnastarfsemi. Þá hefur  bankinn
einnig lagt áherslu á  að hagræða í rekstri  og hefur hann náð  góðum
árangri í þeim efnum á árinu.

Lárus Welding, forstjóri Glitnis banka hf.
,,Stjórn og  stjórnendur bankans  hafa unnið  ötullega að  fjármögnun
bankans í ölduróti undanfarinna mánaða,  en staðan versnaði til  muna
allra síðustu  daga. Þessi  innkoma ríkisins  styrkir  eiginfjárstöðu
bankans mjög og tekur  af allan vafa  um fjárhagslega stöðu  Glitnis.
Við höfum séð sambærilegar  aðgerðir í löndunum  í kringum okkur  sem
endurspeglar  vel   þá  erfiðu   stöðu   sem  ríkir   á   alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Þessi  aðgerð  hefur  því  miður  neikvæð  áhrif  á
núverandi  hluthafa  en   er  nauðsynleg  til   lengri  tíma   litið.
 Viðskiptavinir okkar munu ekki finna fyrir breytingum og Glitnir mun
áfram leggja höfuðáherslu á að veita góða og öfluga þjónustu. Ég  tel
mig einnig geta fullyrt að  þessar aðgerðir endurspegla mikið  traust
stjórnvalda til  Glitnis og  eru mikilvægur  liður í  því að  tryggja
fjármálastöðugleika í landinu. Landslagið á íslenskum fjármálamarkaði
hefur með þessu breyst. Glitnir stendur eftir sterkari en fyrr."

Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis banka hf."Ég hef lagt áherslu á að  auka hagræði í rekstri bankans. Mér  þykir
mjög miður að við skyldum ekki komast með öðrum hætti í gegnum þennan
krappa sjó eins  og lagt  var upp  með. Þessi  niðurstaða tryggir  þó
framtíð bankans og hagsmuni viðskiptavina og starfsfólks. Það er  mér
mjög mikilvægt. Okkar fólk hefur unnið mjög gott starf við gríðarlega
erfiðar aðstæður."


Nánari upplýsingar veitir:
Már Másson, forstöðumaður  samskiptasviðs, sími:  844 4990,  netfang:
mar.masson@glitnir.is .

Sigrún Hjartardóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 844 4748,
netfang: sigrun.hjartardottir@glitnir.is .

Attachments

290908 Frettatilkynning.docx