Fitch lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í BBB / F3 / C



Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað
lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans í 'BBB' úr
'A' , einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga
bankans í 'F3' úr 'F1' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem 'C'
úr 'B/C'. Lánshæfismatseinkunnir bankans hafa verið settar á
athugunarlista með neikvæðum vísbendingum.

Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki
Heritable Bank, voru einnig lækkaðir í 'BBB' úr 'A', einkunnir vegna
innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem 'F3' úr
 'F1' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk staðfest sem C.
Lánshæfismatseinkunnir bankans hafa verið settar á athugunarlista með
neikvæðum vísbendingum.

Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér
meðfylgjandi.

Frekari upplýsingar veita:
Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór
J. Kristjánsson í s. 820 6399,  og Brynjólfur Helgason,
framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.

Attachments

Tilkynning fra Fitch - 30. september 2008.pdf