- Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkar lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs. Horfur neikvæðar.


Í gær gaf alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's út tilkynningu um
lánshæfi íslenska ríkisins. Hún fylgir hér með í lauslegri þýðingu: 


Rökstuðningur

Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í gær lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs
fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt í A-/A-2 úr A/A-1 og
í íslenskum krónum í A+/A-1 úr AA-/A-1+. Einnig hefur Standard & Poor's
lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum til athugunar með
neikvæðum vísbendingum (e. implications).   Auk þess var mat þeirra á skipti-
og breytanleika (e. transfer and convertibility assessment) landsins lækkað í
AA úr AA-. 

Jafnframt lækkaði matsfyrirtækið lánshæfiseinkunnir  Íbúðalánasjóðs  í erlendri
mynt í A-/A-2 úr A/A-1 og á langtímaskuldbindingum í íslenskum krónum í A úr
A+. Einkunnin á skammtímaskuldbindingum í íslenskum krónum var staðfest A-1.  
Þá hefur Standard & Poor's til athugunar lánshæfiseinkunnir sjóðsins á
langtímaskuldbindingum til athugunar með neikvæðum vísbendingum. 

Lækkanirnar koma í kjölfarið á tilkynningu stjórnvalda um að ríkissjóður hefði
lagt Glitni banka til hlutafjárframlag að fjárhæð 600 milljóna evra, eða 84
ma.kr, sem er um 5,9% af vergri landsframleiðslu. Glitnir er einn þriggja
stærstu viðskiptabanka á Íslandi. Ákveðið var að grípa til þessarar aðgerðar í
ljósi þröngrar lausafjárstöðu Glitnis, en þar með verður ríkissjóður eigandi að
75% hlutafjár í bankanum. 

Þessi aðgerð undirstrikar ítrekaðar áhyggjur Standard & Poor's af háum erlendum
skuldbindingum íslenska fjármálakerfisins og þeim  óbeinu ábyrgðum sem í þeim
felast fyrir ríkissjóð. Vegna þess að íslensku bankarnir hafa fjármagnað vöxt
sinn erlendis sem og nokkurra innlendra athafnamanna, þá hafa hreinar erlendar
skuldir fjármálakerfisins aukist úr 161% af útflutningstekjum árið 2003 í 362%
árið 2007. Á sama tímabili hafa innlendar skuldir sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu vaxið úr 130% í 384%.  Þessar tölur eru meðal þeirra hæstu
meðal ríkja sem hafa lánshæfiseinkunn. 

Vegna hagstæðrar skuldastöðu ríkissjóðs (áætluð 12,5% af vergri
landsframleiðslu á árinu 2008 og áður en kom að hlutafjárframlaginu til
Glitnis) og hárra innstæðna hans við Seðlabankann (rúmlega 27% af VLF í lok
ágústmánaðar) hafa stjórnvöld bolmagn til að aðstoða Glitni á ofangreindan
hátt.  Auk þess ætti ríkissjóður að geta aðstoðað ef upp kæmi þörf fyrir
frekari skammtíma lausafjárstuðning við fjármálakerfið.  Sökum stærðar og
uppbyggingar íslenska fjármálakerfisins verður það áfram stór óbein
ábyrgðarskuldbinding fyrir ríkissjóð, sérstaklega í ljósi ástandsins á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum og óvissu með þróun mála á Íslandi, gæti íslenskum
bönkum reynst erfiðara um vik að tryggja erlenda fjármögnun. 

 
Horfur

Ákvörðun S&P að hafa lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs og Íbúðalánasjóðs til
athugunar með neikvæðum vísbendingum endurspeglar þær hættur sem eru ríkjandi
um þessar mundir.  Ef ástandið á íslenskum fjármálamarkaði (þ.e. innlend og
erlend lausafjárstaða, arðsemi og gæði eigna) fer versnandi og það útheimtir
frekari ríkisstuðning og grefur þar með undan skuldastöðu landsins, gæti
lánshæfiseinkunn ríkissjóðs lækkað í kjölfarið. Hins vegar gætu
lánshæfiseinkunnirnar haldist stöðugar ef áhætta ríkissjóðs vegna
bankakerfisins minnkar, annað hvort með innkomu erlendra aðila í kerfið eða með
bættri fjármögnun erlendis frá. 

 

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma
569-9600.