Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2008 er til afgreiðslu í borgarráði í dag fimtudaginn 2. október. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A hluta og B hluta. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur málaflokka, og Eignasjóð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Aflvaki hf., Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningarhöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs. Í fjárhagsáætlun tímabilsins fyrir A hluta var gert ráð fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði jákvæð um 2,7 milljarða króna og heildarniðurstaða ársins jákvæð um 4,4 milljarða króna. Fyrir A og B hluta var gert ráð fyrir í áætlun tímabilsins um 7,3 milljarða króna jákvæðri niðurstöðu fyrir fjármagnsliði og jákvæðri heildarniðurstöðu um 5,6 milljarða króna. Tekjur samstæðu A og B hluta eru um 6,9 milljörðum króna lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Meginskýringin er sú að sala á byggingarétti varð mun minni en áætlun gerði ráð fyrir og skatttekjur eru lægri vegna lækkunar útsvarstekna. Hvað gjaldahliðina varðar þá eru rekstrargjöld samstæðu A og B hluta lægri en áætlun sem nemur 1,9 milljörðum. Fjármunatekjur A hluta voru 1,1 milljarði lægri en áætlað var sem skýrist að mestu af lækkun íslensku krónunnar. Fjármagnsgjöld A og B hluta voru hins vegar 23,3 milljörðum yfir áætlun, sem skýrist hárri verðbólgu tímabilsins og gengislækkun krónunnar. Eignir A hluta eru 98 milljarðar, hækka úr 88,5 milljörðum króna eða um 9,5 milljarða. Skuldir A hluta hækka úr 16,4 milljörðum í 25,5 milljarða eða um 9,1 milljarð og skuldbindingar hækka um 0,8 milljarða, úr 14,0 milljörðum í 14,8 milljarða. Eigið fé A hluta lækkar um 0,4 milljarða úr 58,1 milljarði í 57,7 milljarða, sem skýrist af rekstrarniðurstöðu. Eignir A og B hluta nema nú 351,7 milljörðum króna og hafa vaxið um 37,5 milljarða króna á tímabilinu. Heildarskuldir A og B hluta að frátöldum skuldbindingum eru 194,6 milljarðar króna en voru 135,9 milljarðar króna í árslok 2007 og hafa því aukist um 58,7 milljarða króna. Skuldbindingar lækkuðu um 2,2 milljarða króna á tímabilinu. Eigið fé A og B hluta lækkar um 19,0 milljarða úr 158,8 milljörðum í 139,8 milljarða, Veltufjárhlutfall hjá A og B hluta var 1,65 í lok tímabils á móti 1,68 í árslok 2007. Hjá A hluta var hlutfallið 1,80 í lok tímabilsins en 2,62 í árslok 2007.