- Tímabundin frestun á viðskiptum í öllum sjóðum


Í ljósi ákvörðunar FME um að stöðva tímabundið fyrir viðskipti með alla
fjármálagerninga útgefna af Glitni, Kaupþingi, Landsbanka, Exista, Straumi og
SPRON hefur stjórn Landsvaka hf. ákveðið að fresta tímabundið viðskiptum með
alla sjóði sem eiga fjármálagerninga útgefna af framangreindum aðilum. 
Ákvörðunin er tekin með hagsmuni eigenda hlutdeildarskírteina að leiðarljósi. 

Frestunin tekur til neðangreindra sjóða sem skráðir eru í Kauphöll:
Peningabréf ISK, kt. 600390-9969
Fyrirtækjabréf Landsbankans kt. 600390-9029
Markaðsbréf Landsbankans - stutt kt. 670898-9039
Markaðsbréf meðallöng kt. 670898-9119
Markaðsbréf löng kt. 670898-9469
Úrvalsbréf Landsbankans kt. 670898-9549