Sendiherra Rússlands á Íslandi, Victor I. Tatarintsev, tilkynnti formanni bankastjórnar Seðlabankans í morgun að staðfest hefði verið að Rússland myndi veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra. Lánið mun verða til 3 - 4 ára á kjörum sum munu verða á bilinu 30 - 50 punktum yfir Libor-vöxtum. Putin forsætisráðherra Rússlands hefur staðfest þessa ákvörðun. Forsætisráðherra Íslands hóf athugun á möguleikum á slíkri lánafyrirgreiðslu á miðju sumri. Sérfræðingar Seðlabanka og stjórnarráðsins munu halda til Moskvu mjög fljótlega. Lánafyrirgreiðsla af þessu tagi mun treysta mjög gjaldeyrisforða Íslands og styrkja grundvöll íslensku krónunnar.
- Efling gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands
| Source: Seðlabanki Íslands