Fjármálaeftirlitið tekur yfir stjórn Glitnis



Reykjavík 7. október, 2008  Glitnir banki hf. tilkynnir hér með að
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að taka yfir vald
hluthafafundar Glitnis banka hf. og víkja félagsstjórn í heild sinni
frá störfum þegar í stað. FME hefur skipað skilanefnd sem tekur við
öllum heimildum stjórnar þegar í stað.
Almenn bankastarfsemi verður óbreytt, öll útibú opin og áfram verður
opið fyrir millifærslur í íslenskum krónum. Gera má áfram ráð fyrir
verulegum takmörkunum á gjaldeyrisviðskiptum. Breytingar á þeirri
stöðu verða gerðar í samráði við Seðlabanka og FME.
Í skilanefnd hafa verið skipaðir Árni Tómasson, Heimir Haraldsson,
Steinunn Guðbjartsdóttir, Sverrir Örn Þorvaldsson og Ágúst
Hrafnkelsson.
Skilanefnd hefur farið þess á leit við Lárus Welding að hann haldi
áfram störfum sem forstjóri Glitnis og hefur samþykkt þá ósk.  Þá
hefur einnig verið óskað eftir því að stjórnendur og starfsfólk
bankans haldi áfram störfum fyrir bankann.
Glitnir vill taka fram að bankinn hefur ekki verið tekinn til
gjaldþrotaskiptameðferðar.
Vinna hefur þegar hafist við endurskipulagningu á starfsemi Glitnis.
Skilanefndin og forstjóri Glitnis eru sammála um að starfsemi Glitnis
skuli áfram vera í eins eðlilegu horfi og kostur.

Nánari upplýsingar veitir:
Már Másson, forstöðumaður samskiptasviðs Glitnis, 844 4990,
mar.masson@glitnir.is

Attachments

081008 FME tekur yfir stjorn Glitnis.doc