FME tekur yfir rekstur Kaupþings



Kaupþing banki hf. tilkynnir hér með að Fjármálaeftirlitið (FME)
hefur ákveðið að taka yfir vald hluthafafundar Kaupþings banks hf.
Jafnframt hefur stjórn bankans sagt af sér. Að auki hefur FME hefur
skipað skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar þegar í
stað.

Í skilanefnd hafa verið skipuð Finnur Sveinbjörnsson, Knútur
Þórhallsson, Bjarki H. Diego, Guðný Arna Sveinsdóttir og Steinar Þór
Guðgeirsson.

Skilanefnd hefur farið þess á leit við Hreiðar Má Sigurðsson að hann
haldi áfram störfum sínum sem forstjóri Kaupþings og beri áfram
ábyrgð á daglegum rekstri.