Glitnir banki hf. óskar eftir því að hlutabréf bankans verði tekin úr viðskiptum


Reykjavík, 14 október 2008

Skilanefnd Glitnis banka hf. hefur með bréfi dags. 14. október 2008
farið þess á leit við OMX Nordic Exchange Iceland hf. að skráð
hlutabréf Glitnis banka hf. verði tekin úr viðskiptum, sbr. 2. mgr.
24. gr. laga nr. 110/2007 um Kauphallir.  Til grundvallar beiðninni
er vísað til inngrips Fjármálaeftirlitsins í rekstur bankans samkvæmt
lögum nr. 125/2008 um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði,
sbr. auglýsingu Fjármálaeftirlitsins dagsetta 7. október 2008.

Nánari upplýsingar veitir:
Fjármálaeftirlitið í síma 525 -2700