- Staðan í greiðslumiðlun í landinu og milli Íslands og annarra landa


Innlend greiðslumiðlun milli bankastofnana og viðskiptavina þeirra gengur vel.
Það sama á við um notkun íslenskra greiðslukorta, innanlands sem utan. Þegar
greitt er fyrir erlendan gjaldmiðil þurfa notendur kortanna að sjálfsögðu að
gæta að genginu nú sem endranær. 

Í byrjun þessa mánaðar styrkti Seðlabanki Íslands tímabundið gildandi
samningssamband milli banka og sparisjóða sem gefa út greiðslukort og þeirra
sem annast uppgjör viðskipta með þau. Þetta var gert til þess að tryggja
hnökralausa notkun korta við ríkjandi aðstæður. Að mati bankans var á sama tíma
óhjákvæmilegt að lækka háar ónotaðar úttektarheimildir til að draga úr áhættu.
Þessi aðgerð ætti í fæstum tilvikum að hafa skapað vandamál. 

Þótt innlend greiðslumiðlun sé með eðlilegum hætti verður ekki það sama sagt um
greiðslur til og frá Íslandi. Í sumum tilvikum sinna erlendir bankar, sem skipt
er við, ekki eðlilegum óskum um greiðslur til íslenskra banka af ótta við að
þær lendi í greiðslustöðvunarferli hjá viðtakanda eða berist hreinlega ekki til
réttra móttakenda og ábyrgðin verði þeirra. Viðtakendur eiga í vandræðum með að
standa í skilum vegna þessa. Hnökrar hafa verið á greiðslum til og frá öllum
löndum. Lang erfiðasta staðan er þó gagnvart breskum aðilum sem rekja má beint
til aðgerða breskra yfirvalda er valdið hafa verulegum skaða. 

Seðlabanki Íslands hefur tekið upp tímabundna hjáleið í greiðslumiðlun gagnvart
útlöndum með því að beina greiðslum bankastofnana til og frá Íslandi um eigin
reikninga og reikninga erlendra samstarfsaðila Seðlabankans sem að öðru jöfnu
hafa ekkert með starfsemi íslenskra bankastofnana að gera. Seðlabanki Íslands
hefur verið farið fram á það að seðlabankar annarra ríkja beini þeim tilmælum
til viðskiptabanka í eigin landi að greiðslum til Íslands verði miðlað í gegnum
reikninga Seðlabankans. Seðlabankinn sér um að greiðslurnar berist réttum
innlendum aðilum fyrir tilstuðlan innlendra banka eða sparisjóða. Þessi aðferð
hefur þegar reynst vel gagnvart Danmörku og vonir standa til að það sama eigi
við um önnur lönd innan tíðar. 

Vandamálin við greiðslur til og frá Íslandi stafa bæði af aðstæðum hér á landi
og erlendis. Gangsetning nýrra banka flýtir því að unnt verði að leysa hnúta
sem myndast hafa. Nauðsynlegt er að sem fyrst verði ljóst hvernig starfsemi
Kaupþings verði háttað.