Eimskip dregur íslenska fána á hún


Eimskip hefur ákveðið að flagga fána Íslands daglega, sem tákn um samstöðu
Íslendinga í þeim erfileikum sem nú steðja að þjóðinni. 

Ólafur William Hand forstöðumaður markaðssviðs Eimskips sagði þetta er gert að
fordæmi N1, sem átti þessa frábæru og einföldu hugmynd um hvernig mætti þjappa
þjóðinni saman. 

Eimskip vill hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að fara að þeirra fordæmi og
munum við ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum. Skrifstofur Eimskips um
allan heim munu draga íslenska fánann að húni frá og með deginum í dag og gera
það um óákveðinn tíma.