Með hliðsjón af nýliðnum atburðum á Íslandi vill Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) koma eftirfarandi upplýsingum um stöðu bankans á framfæri: Eiginfjárhlutfall Straums (CAD) er í dag yfir 20%, en lögbundið lágmark er 8%. Bankinn heldur þétt utan um lausafjárstöðu sína og er sem fyrr í skilum með allar skuldbindingar. Nettóstaða Straums gagnvart Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf. og Kaupþingi banka hf. hvað varðar afleiðuviðskipti og lánasamninga var jákvæð. Seðlabanki Íslands tilkynnti Straumi þann 20. október 2008 að hann myndi þann 22. október 2008 auka frádrag á óvörðum verðbréfum útgefnum af ofangreindu bönkunum þremur, sem lögð hafa verið fram til tryggingar í viðskiptum við Seðlabankann, í 50 af hundraði. Vegna þessa hefur Straumur lagt fram viðbótarveð hjá Seðlabankanum að fjárhæð um það bil 18,3 milljarðar króna sem Seðlabankinn hefur samþykkt í dag. William Fall, forstjóri Straums:"Stefnan sem við höfum framfylgt undanfarið hálft annað ár eða svo hefur gert okkur kleift að komast í gegnum þetta erfiða tímabil. Við höfum minnkað efnahagsreikninginn og lagt aukna áherslu á þóknunartekjur, sem þýðir meðal annars að fjármögnunarþörf okkar er minni en ella hefði verið. Í öðru lagi höfum við sótt fram á erlendum vettvangi og þannig dregið úr hlutfallslegu vægi Íslands í starfseminni. Til marks um það var tveimur þriðju hlutu tekna okkar á fyrri helmingi þessa árs aflað utan Íslands. Markaðsaðstæður eru enn óhagstæðar bankastarfsemi almennt en óvenjulega hátt eiginfjárhlutfall og tiltölulega lítil endurfjármögnunarþörf koma okkur til góða." Nánari upplýsingar veita: Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi Sími: 858 6778 Netfang: olafur.gudnason@straumur.net Georg Andersen Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs Sími: 858 6707 Netfang: georg.andersen@straumur.net
Um stöðu Straums
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.