Helstu niðurstöður fyrir níu mánuði ársins 2008 • Sala á vöru og þjónustu nam 10.729 mkr og jókst um 38% miðað við sama tímabil í fyrra • EBITDA var 393 mkr en 489 mkr árið 2007 • Eiginfjárhlutfall 25% eftir 730 mkr gengistap • Tap á árinu nam 694 mkr samanborið við 302 mkr hagnað á sama tíma í fyrra • Innleiðing á nýju viðskiptamódeli að hefjast en það eykur hagkvæmni og sérhæfingu dótturfélaga Þórður Sverrisson, forstjóri: „Rekstur grunnstarfsemi Nýherja er samkvæmt áætlun í ársfjórðungnum og skilar ágætri afkomu fyrir fyrstu níu mánuðina. Sama gildir um hluta dótturfélaga hérlendis og fyrir hugbúnaðarstarfsemi erlendis. Tekjur erlendra dótturfyrirtækja Nýherja eru nú um 22% af heildartekjum samstæðunnar og eykur það stöðugleika í rekstri félagsins. Nýtt viðskiptamódel Nýherjasamstæðunnar, sem unnið hefur verið að frá því í vor, var kynnt í byrjun október og lýkur innleiðingu í nóvember. Markmið þess er að skerpa þjónustu við viðskiptavini, með sérhæfingu dótturfélaga á einstökum sviðum, ásamt því að auka hagkvæmni í rekstri félagsins. Starfsemi Nýherja er fjölþætt og dreifð, fjárhagsstaða traust og er eiginfjárhlutfall 25,4%, þrátt fyrir gjaldfærslu á 730 mkr. gengistapi á árinu.“ Yfirlit yfir rekstur Nýtt viðskiptamódel fyrir Nýherjasamstæðuna var kynnt í byrjun október og verður innleitt í nóvembermánuði. Með því mun félagið skerpa sýn og áherslur á völdum sérsviðum og skapa dótturfélögum sveigjanleika og sóknarfæri. Einnig næst fram kostnaðarleg hagkvæmni og samlegð í sölustarfsemi. Nýherji verður móðurfélag sex megindótturfélaga, en innan Nýherja verður einnig sala og vörustjórnun á tölvu- og tæknibúnaði. Megin dótturfélög Nýherja eru eftir breytinguna: • Skyggnir ehf. sérhæft á sviði bestunar UT kerfa, samþættingu samskiptalausna og rekstrarþjónustu. • Sense ehf. fyrir stafrænar lausnir, svo sem fyrir hljóð- og myndbúnað. • TM Software ehf. með áherslu á viðamikla hugbúnaðarþróun og samþættingu kerfa. • Applicon ehf. með áherslu á viðskiptahugbúnað, fjármálalausnir og sérhæfðar atvinnugreinalausnir. • Nýtt félag verður stofnað um alla sameiginlega stoðþjónustu fyrir samstæðuna. • ParX ehf. sem mun áfram sérhæfa sig í viðskiptaráðgjöf. Hluti af starfsemi Nýherja mun flytjast að Urðarhvarfi 6 í Kópavogi, þar sem TM Software er nú til húsa, en félagið verður einnig með starfsemi í húsnæði Nýherja að Borgartúni 37. Rekstur kjarnastarfsemi Nýherja hefur gengið vel það sem af er þessu ári og er afkoma nærri áætlun. Ágæt sala hefur verið í miðlægum tölvulausnum, gagnageymslulausnum og í hönnun og uppbyggingu tölvurýma. Ennfremur var töluverð eftirspurn eftir samskiptalausnum, svo sem IP símkerfum og fjarfundalausnum, svo og hýsingarþjónustu. Sala á prentsmiðjulausnum hefur verið á áætlun. Sala á einmenningstölvum er hins vegar minni en á sama tíma í fyrra. Afkoma Applicon fyrirtækjanna er jákvæð, einkum hjá Applicon AB í Svíþjóð og Applicon A/S í Danmörku. Í þessum félögum er verkefnastaðan góð og í takt við væntingar. Hins vegar hefur rekstur Applicon ehf. á Íslandi reynst þungur. Þá var halli á starfsemi Applicon Solutions A/S í Danmörku og Applicon Solutions Ltd. í Bretlandi. Rekstur Dansupport A/S í Danmörku hefur verið endurskipulagður og þar eru söluhorfur góðar og er gert ráð fyrir að starfsemi þess nái jafnvægi á árinu. Hugbúnaðarstarfsemi TM Software hefur skilað ágætum hagnaði en unnið er að margþættum breytingum í rekstarþjónustu til þess að ná betri afkomu úr þeirri starfsemi. Meðal annars mun Skyggnir starfa sem sérstakt félag og starfsemi tæknideilda Nýherja verða hluti af því. Þessi breyting gefur félaginu margþætt sóknarfæri, svo sem í verkefnum erlendis. Horfur Horfur um rekstur hérlendis eru nú óljósari en áður og óvissa meiri vegna áhrifa af breytingum á rekstri viðskiptabanka og stöðu á fjármálamörkuðum. Þótt samdráttur kunni að verða í vörusölu hérlendis eru þjónustutekjur nokkuð stöðugar, auk þess sem tekjur og afkoma erlendra dótturfélaga Nýherja er ágæt. Vegna óvissunnar má ætla að afkoma Nýherja samstæðunnar verði nokkuð undir áætlun í fjórða ársfjórðungi, en brugðist verður við breyttum aðstæðum með hagræðingaraðgerðum. Lögð er áhersla á að undirstöður í rekstri Nýherja eru traustar og skuldsetning hófleg, en í ljósi stöðunnar í efnahagsmálum er afar erfitt að spá fyrir um rekstrarforsendur næstu mánaða. Samþykkt árshlutareiknings. Árshlutareikningur fyrir þriðja ársfjórðung 2008 fyrir Nýherja hf. var samþykktur á stjórnarfundi 22. október. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards). Fjárhagsdagatal fyrir 2008 Áætluð birting árshlutauppgjörs fyrir árið 2008. Fjórði ársfjórðungur 23. janúar 2009 Aðalfundur Nýherja 2009 6. febrúar 2009 Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir: Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630. Nýherji hf Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina. Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og rekstrarþjónustu. Félög Nýherja samstæðunnar eru 20 bæði hér heima og erlendis og er heildarfjöldi stöðugildi 721. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í OMX Kauphöll Íslands. Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónssson. Þórður Sverrisson er forstjóri Nýherja.