- Nýr framkvæmdastjóri Applicon ehf. dótturfélags Nýherja hf.


Stjórn Applicon ehf. hefur ákveðið að ráða Ingimar G. Bjarnason til starfa sem
framkvæmdastjóra félagsins og mun hann taka við því starfi nú í vikunni. 
  
Ingimar hóf störf á hugbúnaðarsviði Nýherja hf. í febrúarmánuði 1998 og
starfaði þar og síðan hjá Applicon ehf. fram til ágústmánaðar 2006.  Þá tók
Ingimar við sem framkvæmdastjóri Applicon Solutions Ltd. í Bretlandi og hefur
gegnt því starfi þar til nú.  Ingimar lauk prófi í véla- og iðnverkfræði frá
Háskóla Íslands árið 1996 og síðan MBA prófi frá IESE Viðskiptaháskólanum í
Barcelóna 2003. 

Kristján Jóhannsson sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Applicon ehf. frá
stofnun félagsins og þar áður framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs Nýherja hf.
lætur nú af störfum.  Stjórn Applicon ehf. vill færa Kristjáni þakkir fyrir
mikil og góð störf við uppbyggingu á félaginu og óskar honum velfarnaðar í
framtíðinni.