Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt Sparisjóðabanka Íslands hf. að verðmæti óvarinna verðbréfa sem Sparisjóðabankinn hefur í veðlánunum hjá Seðlabankanum og útgefin voru af Glitni, Kaupþingi og Landsbanka, hafi verið endurmetin. Jafnframt krafði Seðlabankinn Sparisjóðabanka Íslands um auknar tryggingar vegna þeirra veðlána. Krafa um auknar tryggingar nemur um 60 milljörðum króna. Seðlabanki Íslands hefur veitt Sparisjóðabankanum tveggja vikna frest til þess að leggja fram umræddar tryggingar. Sparisjóðabanki Íslands leitar nú samninga við Seðlabankann og /eða ríkissjóð vegna þessa endurmats Seðlabanka Íslands.
Vegna endurmats Seðlabankans á óvörðum verðbréfum
| Source: Sparisjóðabanki Íslands hf.