Glitnir Sjóðir greiða út allar eignir úr Sjóði 9


* Útgreiðsluhlutfall til sjóðsfélaga er 85,12%
  * Áherslan var á að breyta eignum í laust fé og lágmarka tap
    viðskiptavina
  * Upphæðin lögð inn á opinn hávaxtareikning í nafni sjóðfélaga
  * Bankinn og Glitnir Sjóðir harma  tap  sjóðfélaga og óþægindi sem
    þeir hafa orðið fyrir

Reykjavík 30. október, 2008 Glitnir Sjóðir hf. greiða út allar eignir
úr Sjóði 9 - peningamarkaðsbréf í dag, fimmtudag. Fjármunirnir  verða
lagðir inn á sparnaðarreikninga í nafni hvers sjóðfélaga í  hlutfalli
við eign þeirra í sjóðnum.

Útgreiðsluhlutfall sjóðsins er 85,12% sem  er allt laust fé  sjóðsins
sem og það endurgjald sem  hann fékk fyrir verðbréfasafn sitt.  Þetta
hlutfall miðast við síðasta skráða viðskiptagengi í Sjóði 9, þann  6.
október sl. Upphæðin verður lögð  inn á innlánsreikninga  sjóðfélaga.
Starfsmenn og stjórn sjóðsins hafa á síðustu vikum lagt  höfuðáherslu
á að koma verðbréfasafni sjóðsins í  verð til þess að geta greitt  út
inneign sjóðfélaga og lágmarka þannig tap þeirra.

Bestu innlánskjör í boði fyrir sjóðfélaga
Upphæð, sem svarar til hlutfalls  hvers sjóðfélaga í sjóðnum,  verður
lögð inn á sparnaðarreikning í þeirra nafni hjá Nýja Glitni. Um er að
ræða sparnaðarreikning Eignastýringar sem  býður bestu fáanlegu  kjör
hjá Glitni.  Sérkjör reikningsins eru  í boði fram að áramótum  fyrir
þá fjárhæð sem sjóðfélagar fá  greidda úr sjóðnum.  Reikningurinn  er
opinn og hægt   að taka út  af honum á  hefðbundinn hátt,  í  útibúum
bankans og Netbanka Glitnis. Sjóðfélögum verður sent bréf með  nánari
upplýsingum  um útgreiðslufjárhæð og  sparnaðarreikninginn.

Hagsmunir sjóðfélaga í forgrunni
Peningamarkaðssjóðir á Íslandi hafa verið lokaðir til þess að  vernda
hagsmuni sjóðsfélaga  og freista  þess að  ná sem  bestri  niðurstöðu
fyrir þá. Lokunin  hefur valdið mörgum  viðskiptavinum óþægindum  sem
Glitnir Sjóðir  harma.  Bankinn  hefur  reynt að  koma til  móts  við
þarfir  viðskiptavina sem hafa þurft á aðstoð að halda.

Rétt er að árétta að allar fjárfestingar Sjóðs 9 hafa verið í samræmi
við lög, reglur  og fjárfestingarheimildir sjóðsins.  Það var  síðast
staðfest af  Fjármálaeftirlitinu  2. október  sl. á  heimasíðu FME  -
www.fme.is.



Nánari upplýsingar veitir:
Már Másson, forstöðumaður samskiptasviðs, Nýja Glitni, sími: 844
4990,
t-póstur: mar.masson@glitnir.is .

Agla Elísabet Hendriksdóttir framkvæmdastjóri Glitnis Sjóða hf, Nýja
Glitni,
sími: 844 4917, t-póstur: agla.hendriksdottir@glitnir.is .

Attachments

081030 Glitnir Sjoir.doc