Nýherji hefur ákveðið að bregðast við óvissu og breyttu efnahagsumhverfi hérlendis með lækkun launa og rekstrarkostnaðar. Markmið þessara aðgerða er að verja störf starfsmanna eins og kostur er í þeirri óvissu sem framundan er, en jafnframt að ná fram umtalsverðri lækkun launakostnaðar þar sem hann er tæplega 80% af rekstrarkostnaði Nýherja. Í því skyni hefur eftirfarandi verið ákveðið og kynnt starfs-mönnum Nýherja og dótturfélaga. • Föst laun allra starfsmanna Nýherja og dótturfélaga á Íslandi lækka um 10% frá 1. febrúar 2009. En eftir þann tíma halda starfsmenn 90% af sínum núverandi föstum mánaðarlaunum. Laun starfsmanna með grunnlaun, sem eru lægri en 300 þúsund krónur á mánuði munu hins vegar vera óbreytt. • Laun forstjóra og framkvæmdastjóra lækka um 10% strax frá 1. nóvember samkvæmt þeirra ákvörðun. • Hugsanlegum samdrætti í verkefnum einstakra starfsmanna verður mætt með því að bjóða þeim hlutastörf. • Nauðsynlegt hefur reynst nú í október að ganga frá starfslokum 15 af um 550 starfsmönnum hérlendis vegna fyrirsjáanlegs samdráttar. • Beitt verður ýtrasta aðhaldi varðandi almennan rekstrarkostnað og dregið úr þróunarkostnaði og öðrum útgjöldum eins og kostur er. • Ráðist hefur verið í sérstakt átak við að afla nýrra verkefna erlendis á sviði hugbúnaðarráðgjafar og tækniþjónustu fyrir íslenska starfsmenn Nýherjasamstæðunnar. Er það m.a. gert með milli-göngu dótturfélaganna Applicon og Dansupport í Danmörku og Svíþjóð, en starfsmenn þessara fyrirtækja eru um 170 og markaðsstaða sterk á þeirra heimamarkaði. Fjárhagsstaða Nýherja er traust og félagið hóflega skuldsett, en sú óvissa staða sem nú er í íslensku efnahagslífi getur haft áhrif á tekjur og rekstur félagsins. Gera verður ráð fyrir að viðskipti dragist saman á næstu mánuðum og því mikilvægt að bregðast strax við og lækka kostnað til þess að mæta þeirri óvissu, sem við blasir. Megináhersla stjórnenda fyrirtækja innan samstæðunnar á næstu mánuðum er að skila viðunandi afkomu og renna þannig enn styrkari stoðum undir reksturinn og störf starfsmannanna.