- Frestun hluthafafundar VBS fjárfestingarbanka hf. og nýtt fundarboð


Stjórn VBS fjárfestingarbanka hf. tilkynnir að áður boðuðum hluthafafundi sem
halda átti þriðjudaginn 4. nóvember n.k. hefur verið frestað. 

Nýr hluthafafundur er boðaður þriðjudaginn 11. nóvember, kl. 17:00, í
húsakynnum bankans að Borgartúni 26, 105 Reykjavík (6. hæð). 

Dagskrá:

1.       Aðstæður á fjármálamarkaði, stefna og áherslur VBS. 

2.       Heimild til stjórnar til þess að víkja frá ákvæði í starfskjarastefnu.

3.       Breyting á samþykktum:

         -  Að heimilt verði að gefa út skuldabréf með breytirétti í hlutafé
            allt að fjárhæð krónur 3.000.000.000.- 

         -  Að stjórn hafi umboð til að ákvarða verð og kjör skuldabréfa ásamt
            gildistíma breytiréttar. 

4.       Að gildandi heimild til útgáfu nýrra hluta að fjárhæð allt að krónur
         150.000.000 að nafnvirði falli niður. 

5.       Að heimild verði veitt til útgáfu nýrra hluta allt að krónur
         300.000.000 að nafnvirði án forkaupsréttar. 

         -   Að stjórn hafi umboð til að ákvarða fjárhæð bréfanna, gengi og
             hvort greitt er með reiðufé eða í öðru formi. 

6.       Kosning stjórnar og varastjórnar.

7.       Önnur mál, löglega upp borin.


Framboðsfrestur til stjórnar og varastjórnar rennur út miðvikudaginn 5.
nóvember 2008 kl. 16:00. Framboðum skal skilað á skrifstofu félagsins,
Borgartúni 26 (6.hæð), 105 Reykjavík. Tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn
geta hluthafar nálgast á skrifstofutíma frá klukkan 16:00, miðvikudaginn 5.
nóvember. 

Athygli er vakin á því að samkvæmt lögum og reglum um fjármálafyrirtæki  skal í
tilkynningu um framboð koma fram: nafn frambjóðanda, kennitala, heimilisfang,
upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og
hlutafjáreign í félaginu.  Enn fremur skal upplýsa um hagsmunatengsl við helstu
viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en
10% hlut í félaginu. 
 

Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir við innganginn frá klukkan 16:30 á
fundardegi. 

                                                                             
Virðingarfyllst, 
Stjórn VBS fjárfestingarbanka hf.