Vegna fyrirmæla frá Fjármálaeftirlitinu til allra útgefenda hlutabréfa á verðbréfamarkaði hér á landi um birtingu greinargerðar um stöðu félaganna vegna óvenjulegs ástands vill Icelandair Group taka fram eftirfarandi: Icelandair Group sendi þann 12. október 2008 svohljóðandi tilkynningu til Kauphallar Íslands um afkomu félagsins, rekstur og rekstrarhorfur: "Í ljósi óvenjulegra aðstæðna á fjármálamörkuðum hefur stjórn Icelandair Group samþykkt að senda frá sér eftirfarandi tilkynningu um óendurskoðað uppgjör og yfirlit um rekstur félagsins á fyrstu 8 mánuðum ársins 2008. Í viðhengi er tilkynningin frá 12.október sl. Nánari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson forstjóri, sími 896-1455 Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála, sími 665-8801