Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2008 eftir lokun markaða þriðjudaginn 11. nóvember nk. Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 12. nóvember á Hilton Reykjavik Nordica. Kynningin hefst kl. 8:30. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is.
Icelandair Group -Kynningarfundur vegna uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2008
| Source: Icelandair Group hf.