Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings og sveitarstjóri Borgarbyggðar Páll Brynjarsson hafa undirritað samkomulag um að Nýi Kaupþing Banki kaupi stofnfjárhlut Borgarbyggðar í Sparisjóði Mýrasýslu. Kaupin eru háð samþykki stjórnar Nýja Kaupþings Banka, sveitarstjórnar Borgarbyggðar, eftirlitsstofnana og því að samningar náist við lánveitendur sparisjóðsins um áframhaldandi fyrirgreiðslu. Með þessu er búið að draga úr óvissu varðandi afdrif Sparisjóðs Mýrasýslu en kaupin eru liður í endurskipulagningu sjóðsins. Nánari upplýsingar veita: Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings í síma 444 7000 Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar í síma 433 7100
- Nýi Kaupþing Banki kaupir stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu
| Source: Sparisjóður Mýrasýslu