- Tilkynning frá VBS fjárfestingarbanka vegna hluthafafundar 11. nóvember sl.


-Kjör til nýrrar stjórnar og breytingar á samþykktum-

Á hluthafafundi VBS fjárfestingarbanka sem að haldin var í gær  var kjörin ný
stjórn og varastjórn félagsins.  Þá var heimild fengin til að víkja frá ákvæðum
í starfskjarastefnu og samþykkt að breyta samþykktum félagsins.  Á fyrsta fundi
stjórnar sem haldin var strax að loknum hluthafafundi var Páll Þór Magnússon
kjörin stjórnarformaður. 

Á fundinum fór Jón Þórisson, forstjóri félagsins yfir 6 mánaða uppgjör,
aðstæður á markaði ásamt stefnu og breyttum áherslum bankans í nýju umhverfi. 
Þá samþykkti fundurinn heimild til stjórnar að gefa út skuldabréf með
breytirétti í hlutafé allt að fjárhæð krónur 3.000.000.000.  Einnig samþykkti
fundurinn að gildandi heimild til útgáfu nýrra hluta að fjárhæð allt að krónur
150.000.000 að nafnvirði falli niður og að heimilt sé að útgefa nýja hluti allt
að krónur 300.000.000 að nafnvirði án forkaupsréttar. 

Eftirfarandi menn voru kjörnir í stjórn:

Páll Þór Magnússon , formaður stjórnar
Sigrún Helgadóttir
Páll Þór Jónsson
Angantýr V. Jónasson
Birgir Ómar Haraldsson

Eftirfarandi menn voru kjörnir í varastjórn:

Jón Kristjánsson
Símon Sigurður Sigurpálsson
Sigurður Haukur Gíslason
Willum Þór Þórsson
Sigþór Sigurðsson

Frekari upplýsingar veitir:
Jón Þórisson, forstjóri
Sími:  570-1200
Netfang: jon@vbs.is