- Unnið að lausn Kaupthing Edge í Þýskalandi


Skilanefnd Kaupþings hefur síðustu vikur unnið að samkomulagi við
þýsk stjórnvöld um greiðslu innstæðna til viðskiptavina Kaupthing
EDGE í Þýskalandi. Vonir standa til að hægt verði að ljúka þeim á
næstu dögum eða vikum. Fulltrúar frá skilanefnd Kaupþings munu funda
með þýska fjármálaráðuneytinu og þýska fjármálaeftirlitinu vegna
þessa í næstu viku.