Nýja Kaupþing hf. hefur yfirtekið samning Össurar hf. við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Nýja Kaupþing hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í OMX Kauphöllinni á Íslandi í Össuri hf. (OSSR) að lágmarki 100.000 að nafnvirði á gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem bankinn er skuldbundinn til að eiga eða selja skal vera kr. 100.000.000,- að markaðsvirði.