Fjármálaeftirlitið veitti MP Fjárfestingarbanka hf. þann 10. október s.l. starfsleyfi sem viðskiptabanka samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Í tilefni af breyttu starfsleyfi var samþykkt á hluthafafundi þann 14. nóvember s.l. að breyta nafni bankans í MP Banki hf. Erlent heiti er MP Bank hf. Engar verulegar breytingar eru fyrirhugaðar á starfsemi MP Banka hf. á næstunni að öðru leyti en því að bankinn tekur nú við innlánum frá viðskiptavinum. Innlán hjá MP Banka hf. njóta sömu tryggingar og innlán hjá öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum á Íslandi. Um tryggingu innlána vísast til yfirlýsingar Ríkisstjórnar Íslands frá 6. október s.l. Frekari upplýsingar veitir Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP Banka hf. Sími +354 540 3200. Nánari upplýsingar um MP Banka hf. má finna á heimasíðu bankans, www.mp.is.