Árshlutauppgjör Orkuveitu Reykjavíkur eftir fyrstu 9 mánuði 2008


Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 39.588 milljóna króna halla
fyrstu níu mánuði ársins 2008 samkvæmt árshlutauppgjöri, sem samþykkt
var af stjórn fyrirtækisins í dag. Skýrist þessi niðurstaða alfarið
af 63,7% gengisfalli íslensku krónunnar. Rekstrarafkoma fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var jákvæð um 8,2
milljarða króna og hækkaði um 11,9% frá sama tímabili árið 2007.
Fyrirtækið jók raforkusölu sína í erlendri mynt verulega á þriðja
ársfjórðungi.

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 39.588 milljóna króna halla
fyrstu níu mánuði ársins 2008 samkvæmt árshlutauppgjöri, sem samþykkt
var af stjórn fyrirtækisins í dag. Skýrist þessi niðurstaða alfarið
af 63,7% gengisfalli íslensku krónunnar. Rekstrarafkoma fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var jákvæð um 8,2
milljarða króna og hækkaði um 11,9% frá sama tímabili árið 2007.
Fyrirtækið jók raforkusölu sína í erlendri mynt verulega á þriðja
ársfjórðungi.
Helstu niðurstöður 1. janúar - 30. september 2008
Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 39.588 milljóna króna halla á
fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 6.371 milljóna króna hagnað
á sama tímabili árið áður.

Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins námu 16.816 milljónum króna
en voru 15.414 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta,
EBITDA, var 8.183 milljónir króna samanborið við 7.310 milljónir
króna á sama tímabili árið áður.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 50.704 milljónir króna á tímabilinu,
en voru jákvæðir um 4.670 milljónir króna á sama tímabili árið 2007.

Heildareignir þann 30. september 2008 voru 231.289 milljónir króna en
voru 191.491 milljón króna í árslok 2007.

Eigið fé þann 30. september 2008 var 48.218 milljónir króna en var
88.988 milljónir króna í árslok árið 2007.

Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. september 2008 voru 183.071
milljónir króna samanborið við 102.503 milljónir króna í árslok 2007.

Eiginfjárhlutfall var 20,8% þann 30. september 2008 en var 46,5% í
árslok 2007.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld voru neikvæð um 50,7 milljarða króna
samanborið við 4,7 milljarða króna hagnað fyrir sama tímabil árið
2007. Gengistap nam 63,3 milljörðum króna á tímabilinu en
gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða í raforkusölusamningum
skiluðu 16,8 milljarða króna hagnaði á sama tíma.

Ýmis mál
Í maí síðastliðnum var samþykkt breyting á lögum um tekjuskatt sem
fól í sér lækkun á tekjuskattshlutfalli úr 26% í 23,5% og öðlaðist
þessi lagabreyting gildi frá og með 1. janúar 2008. Áhrif lækkaðs
skatthlutfalls í upphafi árs nemur 456 milljónum króna og er lækkunin
tekjufærð í rekstrarreikningi á tímabilinu.

Alþingi samþykkti á vorþingi breytingar á ýmsum lögum á orkusviði með
gildistöku 1. júlí 2009. Þessar breytingar fela það meðal annars í
sér að skipta þarf fyrirtækinu upp þannig að sérleyfisstarfsemi og
samkeppnisstarfsemi sé rekin í aðskildum fyrirtækjum. Vinna að
uppskiptingunni stendur yfir.

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla.

Horfur
Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjármálaumhverfi eftir fall
íslensku bankanna í byrjun október sem hefur leitt til erfiðara
aðgengis íslenskra fyrirtækja að fjármagni. Þrátt fyrir það er
rekstur Orkuveitu Reykjavíkur  traustur og lausafjárstaða sterk.
Fjárfestingaáform næstu mánaða munu taka mið af aðgengi fyrirtækisins
að lánsfé til fjárfestinga og þeim lánskjörum sem í boði verða.

Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, í síma 516-6000.



Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör
Allar tölur eru í milljónum kr.

Rekstrarreikningur                  1.1-30.9. 2008  1.1.-30.9.2007

Rekstrartekjur                              16.816          15.414
Rekstrargjöld                              (8.634)         (8.104)
Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA)             8.183           7.310
Afskriftir                                 (4.990)         (4.151)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)        (50.704)           4.670
Áhrif hlutdeildarfélaga                         44               0
(Tap) hagnaður fyrir skatta               (47.468)           7.829
Tekjuskattur                                 7.880         (1.458)
(Tap) hagnaður tímabilsins                (39.588)           6.371

Skipting (taps) hagnaðar
Eigendur móðurfyrirtækisins               (39.536)           6.368
Hlutdeild minnihluta                          (52)               3
(Tap) hagnaður tímabilsins                (39.588)           6.371

Handbært fé frá rekstri                      4.430           5.345



Efnahagsreikningur                       30.9.2008      31.12.2007

Fastafjármunir                             221.171         183.097
Veltufjármunir                              10.118           8.394
Eignir                                     231.289         191.491

Eigið fé                                    48.218          88.988
Langtímaskuldir og skuldbindingar          171.881          93.205
Skammtímaskuldir                            11.191           9.298
Eigið fé og skuldir                        231.289         191.491

Kennitölur
   Veltufjárhlutfall                          0,90            0,90
   Eiginfjárhlutfall                         20,8%           46,5%

Attachments

Arshlutareikningur samstu Orkuveitu Reykjavikur - 3Q 2008.pdf