Leiðrétting - Ársreikningur fyrir rekstarárið 1.9.2007 til 31.8.2008 - Frétt birt 2008.11.28:14:20:23


Leiðrétting: Fréttatilkynningunni bætt við.

Fréttatilkynning

Mikill halli var á rekstri Ríkisútvarpsins ohf rekstrarárið 1. september 2007
til 31. ágúst 2008. Tap tímabilsins var 739,5 m.kr., þar af má rekja um 600
m.kr. til þess að verðbólga er langt umfram áætlanir. 

Tap undanfarinna tveggja ára veldur því að eigið fé er næstum upp urið og
stendur nú í 31 m.kr. 

Til þess að bregðast við þessum aðstæðum hefur þegar verið gripið til mikilla
aðhaldsaðgerða sem ætlað er að lækka útgjöld um 700 m.kr. á næstu 12 mánuðum. Í
aðalatriðum eru aðgerðirnar tvíþættar: 

•  550 m.kr. nást með almennum niðurskurði í starfseminni. Af þessu leiðir
   uppsögn á   21 starfsmanni og álíka fækkun verktaka. 

•  150 m.kr. nást með almennri lækkun launa um allt að 10%.



Viðfestur er Ársreikningur Ríkisútvarpsins ohf. fyrir rekstarárið 1.9.2007 til
31.8.2008.

Attachments

arsreikningur_rikisutvarpsins_31.08.20081.pdf