- Kaupþing banki óskar eftir viðurkenningu á greiðslustöðvun í Bandaríkjunum


Kaupþing banki hf. ("bankinn") lagði þann 30. nóvember 2008 inn
beiðni (e. voluntary petition) samkvæmt 15. kafla bandarísku
gjaldþrotalaganna, í þeim tilgangi að fá greiðslustöðvun bankans, sem
veitt var af Héraðsdómi Reykjavíkur, viðurkennda í Bandaríkjunum.
Markmið beiðninnar er að vernda eignir bankans í Bandaríkjunum, en sú
vernd er svipuð þeirri vernd sem greiðslustöðvun veitir á evrópska
efnahagssvæðinu, samkvæmt ESB tilskipun 2001/24/EB um
endurskipulagningu og slit lánastofnana, í þeim tilangi að hámarka
verðmæti eigna og tryggja sanngjarna skiptingu verðmæta á milli
kröfuhafa. Með ákvörðun dómstóls í Bandaríkjunum þann 1. desember var
bankanum jafnframt veitt bráðabirgðavernd (e. provisional injunctive
relief) samkvæmt bandarísku gjaldþrotalögunum.