Viðskiptavaki með hlutabréf í Straumi-Burðaráss fjárfestingarbanka hf.(Straumur).



5. desember 2008

Kaupþing Banki hf., Landsbanki Íslands hf. og Glitnir hf. hafa sagt
upp viðskiptavakasamningum sínum við Straum.

Straumur hefur samið við Nýja Kaupþing banka hf. (Nýja Kaupþing) um
viðskiptavaka með hlutabréf í Straumi fyrir eigin reikning Nýja
Kaupþings.

Samningurinn felur í sér að Nýja Kaupþing setur daglega fram kaup- og
sölutilboð í hlutabréf Straums í því skyni að markaðsverð skapist á
hlutabréfunum og verðmyndun verði skilvirk og gagnsæ. Tilboð eru sett
fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður
er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins.

Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi:

Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og
sölutilboð í að lágmarki 1.000.000 hluti í Straumi og skulu tilboð
vera á því gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og
frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%.

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta, sem Nýja Kaupþing skuldbindur sig
til að eiga eða selja dag hvern, skal vera kr. 25.000.000 að
nafnverði.

Nýja Kaupþing mun hefja viðskiptavaktina tveim dögum eftir að
viðskipti með hlutabréf Straums hefjast að nýju.

Nánari upplýsingar veitir;
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskipta-og Markaðssviðs.
Sími: +354 858 6707
georg@straumur.com