- Hlutabréf Exista hf. á Athugunarlista


Hlutabréf Exista hf. haldast á Athugunarlista með vísan til tilkynninga
útgefanda sem birtust 7. nóvember 2008 og 8. desember 2008  um fyrirhugaða
afskráningu félagsins og yfirtökuskyldu sem myndast hefur í félaginu.
Ákvörðunin er tekin á grundvelli iii. og iv. tl. 6. gr. Skilyrða Nordic
Exchange fyrir töku hlutabréfa til viðskipta. 

Skuldabréf Exista hf. hafa verið færð af Athugunarlista með vísan til
ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins, sem birt var 8. desember 2008, um að heimila á
ný viðskipti með fjármálagerninga félagsins.