Þann 19. desember skrifuðu MP Banki hf., Saga Capital Fjárfestingarbanki hf., og Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki hf. undir samninga hjá Lánasjóði sveitarfélaga í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði með bréf sjóðsins í flokki LSS150224. Tilgangur samningsins er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og koma á virkri verðmyndum á eftirmarkaði með bréf sjóðsins. Þann 20. desember munu MP Banki hf., Saga Capital Fjárfestingarbanki hf., og Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki hf. hefja viðskiptavakt með LSS150224. Meginatriði samningsins er eftirfarandi: - Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram kaup- og sölutilboð í OMX Nordic Exchange á Íslandi fyrir opnun markaðar í þá flokka sem samningurinn nær yfir. - Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 20 m.kr að nafnverði. Jafnframt er viðskiptavaka skylt að endurnýja tilboð sín í kauphöll innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. - Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra tilboða og má mest vera 1,0%. - Eigi viðskiptavaki viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 100 m.kr. að nafnverði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða það sem eftir lifir viðskiptadags. - Viðskiptavakar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem sjóðurinn veitir. Frekari skilmála má sjá í meðfylgjandi sýnishorni af samningi. Nánari upplýsingar f.h. Lánasjóðs sveitarfélaga veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: +354 515 4947 egill.skuli.thorolfsson@samband.is
- Samningar um viðskiptavakt með bréf Lánasjóðs sveitarfélaga á eftirmarkaði.
| Source: Lánasjóður sveitarfélaga ohf