- Afkomuviðvörun


Rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja var afar óhagstætt á árinu 2008 vegna
gengisfalls krónu, verðbólgu og hárra vaxta.  Af þessum sökum verða
fjármagnsliðir Sláturfélags Suðurlands svf. (SS) afar óhagstæðir á árinu 2008 í
samanburði við árið á undan sem veldur því að umtalsvert tap verður á rekstri
félagsins á árinu 2008 þó endanlegar afkomutölur liggi ekki fyrir. 

SS var með óverulegar stöður í framvirkum samningum, hlutabréfum og öðrum
verðbréfum við fall bankanna og varð því ekki fyrir beinu tjóni vegna þess. 

Velta félagsins á árinu hefur aukist talsvert og almennur rekstur gengið vel og
því fyriséð að hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA)
verður mun hærri en árið 2007. 

Til að styrkja greiðslustöðu félagsins hafa verið nýtt ákvæði í lánasamningum
til frestunar á stærri afborgunum lána fram til ársins 2010.