- Gjaldeyrisviðskipti Seðlabanka Íslands


Eftir að millibankamarkaður með gjaldeyri var endurvakinn  hefur dregið mjög úr
gjaldeyrisviðskiptum Seðlabankans. Tímabilið 4. til 31. desember seldi
Seðlabankinn 12,6 milljónir evra og fékk til sín 1,5 milljónir evra. Nettósala
gjaldeyris nam því 11,1 milljón evra. Stærstur hluti þessa, eða 10,8 milljónir
evra, stafaði af vöxtum ríkisbréfa, í eigu erlendra aðila, sem leyft er að
skipta í gjaldeyri. Seðlabankinn átti því í raun sáralítil viðskipti á
gjaldeyrismarkaði á framangreindu tímabili.