Eins og fram kom í tilkynningum frá Icelandair Group í tengslum við ársfjórðungsuppgjör á árinu 2008 var samstæðan með víxla að fjárhæð 2,5 milljarðar króna á gjalddaga þann 23. janúar sl.. Icelandair Group hefur, í samstarfi við viðskiptabanka sinn Nýja Glitni, lokið við endurfjármögnun á víxlunum til skamms tíma eða þriggja mánaða. Að undanförnu hefur verið unnið að endurskipulagningu á fjármagnsskipan samstæðunnar og á næstu þremur mánuðum er gert ráð fyrir að ljúka þeirri vinnu. Markmið endurskipulagningarinnar er að aðlaga endurgreiðsluferli skulda að greiðslugetu samstæðunnar til lengri tíma. Nánari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í síma 896-1455 Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri Icelandair Group í síma 665-8801