- Staða Fyrirtækjabréfa Landsbankans og opnun Skuldabréfasjóðs Landsbankans


Fjármálaeftirlitið hefur nú staðfest nýjar reglur Landsvaka fyrir
Fyrirtækjabréf Landsbankans. Þessar reglur miða að því að tryggja jafnræði
allra hlutdeildarskírteinishafa þannig að allir fái greitt hlutfallslega úr
sjóðnum í samræmi við eign sína. Í framhaldi af þessu verður
hlutdeildarskírteinishöfum greitt það reiðufé sem innheimtist inn á
vörslureikning samhliða vaxtagjalddögum og lokagjalddögum eigna sjóðsins, sem
og það reiðufé sem fæst með sölu á eignum sjóðsins. Ekki er gert ráð fyrir að
sjóðurinn verði opnaður fyrir innlausnir að nýju enda er  um er að ræða
aðgerðir sem munu leiða til slita á sjóðnum þegar öllum eignum hans hefur verið
ráðstafað til hlutdeildarskírteinishafa í samræmi við það sem að framan
greinir. Reglubreytingarnar eru gerðar á grundvelli 2. mgr. 12. gr. laga nr.
30/2003. 
 
Sjóðfélagar fá sent bréf á næstu dögum til nánari útskýringa á stöðu
Fyrirtækabréfa ásamt nýjum reglum sjóðsins. 

Þann 14. október var opnað fyrir viðskipi með Skuldabréfasjóða Landsbankans en
þann dag var tilkynnt var um opnun sjóðsins á vef Landsbankans. Sjóðurinn
fjárfestir einungis í ríkistryggðum verðbréfum (spariskírteinum, húsbréfum,
íbúðabréfum, ríkisbréfum og ríkisvíxlum).