- Rangar fullyrðingar í Fréttablaðinu um gjaldeyrisforða


Í Fréttablaðinu í dag eru birtar rangar fullyrðingar um gjaldeyris­forða
Seðlabanka Íslands og sér bankinn sig knúinn til að leiðrétta þær. 

Því er haldið fram í frétt og umfjöllun í blaðinu að gjaldeyrisforð­inn sé
stórlega ofmetinn og að veð gegn tilteknu láni séu færð í gjaldeyrisforða.
Þetta er rangt. Þessir liðir eru ekki meðtaldir í forðanum. Útreikningar á
gjaldeyrisforða og framsetning hans er hvort tveggja gert í fullu samráði við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og er í einu og öllu farið eftir skilgreiningum hans. 

Til upplýsingar skal nefnt að í lok síðasta árs nam gjaldeyrisforði Seðlabanka
Íslands 429,4 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum sem voru birtar fyrr í
mánuðinum og eru aðgengilegar á vef bankans. Það skal ítrekað að veð sem
Fréttablaðið vísar til eru ekki í þeirri tölu.