Ársreikningur Nýherja hf. fyrir árið 2008 var birtur 30. janúar og er að venju áritaður án fyrirvara af endurskoðendum félagsins. Á árinu 2008 lækkaði gengi íslensku krónunnar verulega. Vegna þessa hafa skuldir félagsins tengdar erlendum gjaldmiðlum hækkað umtalsvert. Ein af afleiðingum þess er að félagið uppfyllti í árslok 2008 ekki skilyrði þeirra lánasamninga sem kveða á um eiginfjárhlutfall eða rekstrarhagnaðarhlutfall. Í ársskýrslu félagsins er ábending frá endurskoðendum með tilvísun í skýringu 19 þar sem gerð er grein fyrir þessu atriði. Stjórnendur félagsins hafa átt í viðræðum við lánastofnanir um framlengingu lánanna og hafa þær gengið vel. Breytingar á innra skipulagi Nýherja samstæðunnar og breytingar hjá viðskiptabönkunum hafa tafið viðræðurnar, en aðilar gera ráð fyrir að jákvæð niðurstaða liggi fyrir í byrjun næsta mánaðar.