Ný stjórn IP fjarskipta ehf.


Kosin var ný stjórn fyrir IP fjarskipti ehf. (Tal) á hluthafafundi í dag. Teymi
er eigandi 51% hlutafjár í IP fjarskiptum. Stjórnina skipa: 


Hermann Jónasson
Hilmar Ragnarsson
Jóhann Óli Guðmundsson
Þórhallur Örn Guðlaugsson

Hilmar og Þórhallur eru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu. Þar sem fulltrúar
Teymis hafa vikið úr stjórn IP fjarskipta telst Teymi ekki lengur hafa yfirráð
yfir félaginu í skilningi reikningsskilastaðla og verður félagið því ekki tekið
með í samstæðuuppgjör Teymis.