- HB Grandi fær heimild til að gera upp í evrum


Stjórn HB Granda hf. ákvað á fundi sínum í dag, að fengnu leyfi
Ársreikningaskrár, að færa bókhald sitt og semja ársreikning sinn í evrum frá
og með reikningsárinu 2008.  

Félagið birtir ársreikning síðasta árs í vikunni 9.-13. mars.  

Aðalfundur er fyrirhugaður 3. apríl.