Eimskip semur við skuldabréfaeigendur og áframhaldandi vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu


-Tilboð í eignir félagsins í Norður-Ameríku metin
 
Hf. Eimskipafélag Íslands hefur samið við skuldabréfaeigendur í flokkunum
AVION061 og AVION062, útgefin að verðmæti 10 milljarða ISK um frestun
vaxtagreiðslna. Eimskip hefur þegar fengið undirritað samþykki um 75%
skuldabréfaeigenda þessara flokka og áfram er unnið að því að ná sama
samkomulagi við þann hluta eigenda skuldabréfa sem ekki hafa gengið frá
samningi við félagið. 
 
Eimskip hefur undanfarna mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með
innlendum og erlendum ráðgjöfum eins og áður hefur komið fram. Stór þáttur í
þeirri endurskipulagningu er sala á eignum félagsins í Norður-Ameríku. Stefnt
er að því að söluferlinu ljúki innan nokkurra vikna, en nú er unnið að því að
meta þau tilboð sem komið hafa og ganga til frekari viðræðna við tilboðsgjafa.
Enn er óljóst hvert endanlegt söluverðmætið verður og því er enn óljóst hver
áhrifin á sölunni verða endanlega. 
 
Eimskip hefur þegar náð samkomulagi við mikinn meirihluta skuldabréfaeigenda
allra flokka útgefnum af félaginu um frestun vaxtagreiðslna og afborgana.
Félagið er jafnframt í viðræðum við aðra lánveitendur og hafa viðbrögð
lánveitenda almennt verið jákvæð. Þegar niðurstaða í söluferlinu á eignum í
Norður-Ameríku liggur fyrir verður farið í frekari viðræður við helstu
lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu sem snúa að því styrkja
eiginfjárstöðu félagsins og tryggja framtíðarrekstur þess sem skipafélags. 
 
Þrátt fyrir erfiða skuldastöðu félagsins og óhagstæð skilyrði á fjármálamarkaði
er grunnrekstur félagsins í vel viðunandi horfi og ágætlega hefur gengið að
aðlaga rekstur félagsins að þeim samdrætti sem hefur verið í flutningum til
landsins. 
 
Félagið mun sem fyrr veita viðskiptavinum félagsins trausta og góða þjónustu.
  
Nánari upplýsingar veitir
Gylfi Sigfússon, 
Forstjóri HF. Eimskipafélags Íslands.