- Umsókn Sparisjóðsins í Keflavik um eiginfjárframlag úr Ríkissjóði


Stjórn Sparisjóðsins í Keflavik hefur óskað eftir því við fjármálaráðherra að
nýtt verði heimild laga nr. 125/2008 og sparisjóðnum lagt til nýtt eigið fé sem
nemur 20% af bókfærðu eigin fé eins og það var í árslok 2007. 

Samkvæmt samstæðu ársreikningi Sparisjóðsins í Keflavík nam eigið fé í árslok
2007 alls kr. 25.461.011.000. Miðað við ákvæði áður nefndra laga og reglna er
því heimilt að leggja sparisjóðnum til fjárhæð sem nemur kr. 5.092.202.000 

Sparisjóðurinn í Keflavík ráðgerir að birta ársuppgjör fyrir árið 2008 í viku
14.