- Aðalfundur 27. mars nk. - Breyting á áður kynntri tillögu stjórnar á 17. gr. samþykkta félagsins


Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. hefur samþykkt í framhaldi af ábendingum að
leggja til við aðalfund félagsins sem haldinn verður 27. mars 2009 breytingu á
áður kynntri tillögu stjórnar á 17. gr. samþykkta félagsins.  Tillagan sem lögð
verður fyrir aðalfundinn er svohljóðandi: 


Liður 12.(a) í dagskrá: Tillaga stjórnar um breytingar á 17. gr. samþykkta
félagsins. 

17. gr. verði svohljóðandi:
Deildarstjóri er fulltrúi félagsins gagnvart félagsmönnum í sinni deild og
skýrir stefnu félagsins og vinnur að hag þess í nánu samstarfi við félagsstjórn
og forstjóra félagsins. 

Með sama hætti er deildarstjóri sjálfkjörin fulltrúi deildarinnar á
félagsfundum félagsins og þar með fulltrúi félagsmanna deildar gagnvart
félaginu. Deildarstjóri skal vinna að því að stefna félagsins sé í samræmi við
heildarhag félagsmanna. 

Deildarstjóri aflar innleggs fyrir félagið með góðum samskiptum við
deildarfélaga og aðra þá sem skipta reglulega við félagið. Hann kynnir
deildarfélögum þjónustuframboð félagsins, vinnur með afurðastöðvum félagsins að
skipulagningu flutninga og slátrunar, þannig að hámarks árangur náist, og kemur
á framfæri ábendingum um það sem betur mætti fara í rekstri félagsins. 

Forstjóra eða staðgengli hans skal ávallt boðið að sitja deildarfundi með
málfrelsi, sem boðað skal til með dagskrá og þeim tillögum sem ræða á, svo ekki
fari á milli mála hvaða mál á að taka fyrir. 

Deildarstjóri og aðrir stjórnarmenn deildar skulu í störfum sínum gæta hagsmuna
félagsins í hvívetna. Ef félagsstjórn telur að deildarstjóri, eða aðrir í
stjórn deildar, sinni störfum sem eru ósamrýmanleg augljósum hagsmunum
félagsins eða láti vera að sinna þeim, þá getur félagsstjórn boðað til
deildarfundar þar sem sett er fram rökstutt álit hennar um hverjir meintir
hagsmunaárekstrar eru, ásamt tillögu um að bundinn skuli endi á kjörtímabil
stjórnar deildarinnar og ný stjórn kjörin. Ef tillagan er samþykkt, þá skal
fara fram stjórnarkjör og ný stjórn deildarinnar kjörin fram að næsta aðalfundi
hennar. Ef fulltrúar á deildarfundi fallast ekki á sjónarmið félagsstjórnar
getur félagsstjórn beitt ákvæðum 2. mgr. 6. gr. samþykkta félagsins um hvern
þann félagsmann í viðkomandi deild sem talinn er brjóta vísvitandi gegn
hagsmunum félagsins. 


17. gr. er nú svohljóðandi:
Deildarstjóri hefur á hendi stjórn og framkvæmd sláturmálefna í deild sinni,
boðar til funda, gerir áætlun um tölu sauðfjár, er deildin muni selja til
slátrunar haust hvert, og sendir hana til skrifstofu félagsins.  Hann skal og á
deildarfundi skýra sem best fyrir félagsmönnum rekstur félagsins og fjárhag og
ályktanir aðalfundar og allar gerðir hans, er máli skipta og skal stjórn
félagsins senda deildarstjóra afrit af öllu slíku. 



Reykjavík, 18. mars 2009

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.