Bakkavör Group mun birta ársuppgjör 2008 þriðjudaginn 31. mars


Bakkavör Group mun birta niðurstöður ársuppgjörs 2008 þriðjudaginn 31. mars nk.
í stað 26. mars eins og áður hefur verið tilkynnt. 


Kynningarfundur miðvikudaginn 1. apríl kl. 8:30

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 1.
apríl kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík. Á fundinum
munu Ágúst Guðmundsson, forstjóri, og Richard Howes, fjármálastjóri, skýra
uppgjörið og svara fyrirspurnum. Vinsamlegast athugið að fundurinn fer fram á
ensku. 


Netvarp og símafundur

Fundinum verður varpað á netinu á www.bakkavor.com og hefst útsendingin kl.
8:30. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í síma 800 8660 og +44 (0)20 3043
2436 (breskt númer). 

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á
heimasíðu félagsins, www.bakkavor.com